Flotbryggja við Nýhöfn

Flotbryggja við Nýhöfn

Setja ætti flotbryggju í höfnina við Nýhöfn á Sjálandinu. Áætlanir og teikningar gera ráð fyrri bryggju. Margir íbúar keyptu íbúðir í hverfinu út af fyrirhugaðri höfn með flotbryggju. Hægt væri að setja ódýra „legókubba“ flotbryggju og landgang og semja við Siglingaklúbbinn Vog um umsjón með útleigu eftirlit, þrif og viðhald og geymslu yfir veturinn. Engin leið fyrir fólk að komast upp á land ef það fellur í sjóinn við Sjálandið. Bryggja með öryggisstiga mundi laga það.

Points

Til eru flotbryggjur sem eru eins og fljótandi legókubbar og hægt að púsla þeim saman á mismunandi hátt. Svona flotbryggjur gætu hentað vel við Nýhöfn. Auðvelt væri að taka slíka flotbryggju upp á haustinn og setja aftur niður að voru svo hún skemmist ekki yfir veturinn ef það frís í höfninni. Og nú þegar búið er að endurvekja Siglingaklúbbinn þá gæti Garðabær gert samning við klúbbinn um umsjón með útleigu, þrif og viðhald, eftirlit og geymslu.

Eftir atvik í haust þar sem ungir siglingamenn festu mastur á báti í botni Arnarnesvogar þá hafði fulltrúi í rannsóknanefnd sjóslysa að orði að öryggi við rampinn og höfnina væri ekki nægilega gott og úrbóta þörf. Svona flotbryggja mundi auka öryggi við Nýhöfn og Sjálandið.

Nokkrar ára gamalt tilboð í steyptar flotbryggju og landgang hljóðar upp á 40 milljónir. Legókubbarbryggja frá MarineFloor sem Köfunarþjónustan er með umboð fyrir mundi líklegast vera mun ódýrari og minna viðhald þar sem hægt væri að taka hana upp á veturna þegar frýs í höfninni. Mestar líkur á skemmdum á flotbryggjum er einmitt þegar að það frýs.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information